Friday, November 30, 2007

2 hours, 23 min and counting

Jæja núna eru circa 2 & 1/2 tími í 1. des. Það hefur verið siður hjá mér að hlusta ekki á jólalög fyrr en þá. Ég verð því með Jólahjól, Út með jólaköttin og jólalögin hans Ómars Ragnarssonar tilbúin í iTunes. Spurning hvort að Daninn meiki ekki smá miðnætur jólastemningu.

Annars ligg ég núna í pest. Einhvernveginn verður maður alltaf veikur þegar þess síst er óskað og væs versa. Ég var búinn að plana solo Tokyo ferð á morgun og ætlaði að skoða og fjárfesta í þó nokkrum hlutum (þar á meðal jólaskrauti). Og ég hafði lofað Gunnellu vinkonu minni að passa fyrir hana. En, hvað hefur gerst.

Gokusaifair-ið (útlandakynningahátíð) gekk ágætlega. Ég og Sunna eyddum gríðarlegum tíma í að gera 2 plaggöt fyrir okkar booth (circa heilum klukkutíma) og ég setti upp tölvuna mína svo fólk gæti horft og hlustað á íslensk tónlistarmyndbönd. Alveg 4 gerðu það. Allir aðrir vildu einungis fá að vita hvað margir byggju á Íslandi svo þeir gætu fengið stimpil. Allir útlendingarnir áttu nefninlega að fá 7 stimpla til að sýna að þeir hefðu lært eitthvað. Ég var svo æfur út af þessari heimskulegu hugmynd að ég hennti stimpilblaðinu og rölti í rólega um án þess að pæla í þessum spurningum. Alla vegna að þá er þetta helvíti loksins búið. Get núna sett á CV-ið mitt: "The leader and organizer for Scandinavia at the Gokusaifair in Tokai University in 2007" (huzza)
Ég hafði fengið nokkrar myndir frá pabba sem ég setti í slideshow. Þar á meðal voru nokkrar myndir af föðurfjölskyldunni. Ég ætti nú ekki að vera segja frá þessu (pabbi gamli held ég hafi ekki gott af því) en þo nokkrir af Asíubúnum sem skoðuð það kommentuðu á hvað hann faðir minn væri "kakkoii" (cool). Nishiyama Sensei (kvennkyns kennari um þrítugt) meira að segja líka. Byorun-san no otousan wa kakkoii ne (Pabbi þinn er lítur út cool).

Keypti mér 2 blokkflautur um daginn. Ég hafði ráfað upp og niður stóra hljóðfærabúðsgötu í Tokyo í 40 mín þegar mér tókst loksins að finna búð sem seldi þær. Keypti eina Alto og eina Soprano. Það er helvíti erfitt að ná almennilegum tónum úr Alto flautunni en Sopranu flautan er auðveldari. Spurði svo afgreiðslustúlkuna hvort hún ætti ekki einhverjar bækur tengda blásturshljóðfærum en þær gat ég víst ekki fengið neinstaðar þarna í götunni... ég held að annaðhvort okkar hafi eitthvað misskilið hitt. Ég ætlaði að líta eftir Clarinetti á morgun en það verður víst að bíða í viku. Fer svo sem eftir því hvað ég þarf að borga fyrir það. Ætli Arnaldur og mamma myndu ekki segja að ég hefði fengið enn aðra fluguna í hausunn... það gæti svo sem verið.

Over and out for now, ætla upploada myndum snöggvast.

5 comments:

Anonymous said...

Keypti eina hræódýra tré "þverflautu" í Asakusa... helvítið getur varla stunið út úr sér 3 nótum, vonandi gekk þér betur með þín kaup;)

Unknown said...

... cool í augum Japana - nú get ég dáið rólegur - Þú getur lík sagt Nipponunum að pabbi þinn eigi mótorhjól sem er jafn stórt japönsk vísitölufjölskylduíbúð.

Anonymous said...

Ég er ánægður með þessar myndir og blogginu. Ég verð samt að koma með leiðindar comment og segja að
"góðann daginn" er skrifað "góðan daginn" ég ætla að vona að þetta skrifist á hinn Íslendinginn. Því við erum þeir slökustu á Íslandi í stafsetningu. Ég er samt einu orði betri en þú ef þetta varst þú :)

apaplanetan said...

Bíddu, bíddu. Var ekkert kommentað á hvað bróðir þinn er kookkllle? Varstu með einhverjar asnalegar myndir af mér þá?

Anonymous said...

Blessaður.
Ég er sjálfur enn í prófarugli.

Mér dettur ekki í hug að fara að skjóta á þessi hljóðfærakaup þín, enda hef ég virkilega notið þess að hlusta á undurfagra tóna hljómborðsins og munnhörpunnar á síðustu árum;)

Það er ágætt að þú bloggir reglulega svo maður fái tækifæri til að fylgjast með Japans-ævintýrinu.

Bestu kveðjur,

Arnaldur